Jćja jćja jćja

Setti inn nýja könnun, núna verðum við að ákveða helgi áður en byrjar að snjóa!!! Og svo verður sú helgi valin sem fær flest atkvæði þannig að allir að kjósa!!!!!

Þetta er frá Sögu og Birnu:
Kæru samnemendur
Komin er upp sú hugmynd að hópa líffræðinemendur saman og fara á
köfunarnámskeið. Nú þegar eru komnir um 6 nemendur á fyrsta ári og annað
eins á öðru ári. Okkur langar að auglýsa eftir fleira áhugasömu fólki, því
fleiri því skemmtilegra :)
Skóli: Köfunarskólinn kafarinn.is
Tímasetning: Planið var að hafa þetta í haust, erum búnar að tala við
Héðinn hjá köfunarskólanum og hann sagði að bóklega tæki svona 2-3
vikur. Það er meðal annars horft á video, gerð verkefni og í lokin er svo
tekið krossapróf. Allt bóklega fer fram á kvöldin.
Svo er bara spurningin er tímasetningin vandamál? að hafa það í byrjun
águst. Væntanlega er fólk að fara í sumarpróf og á erfitt með að vera gera
heimaverkefni í þessu í ofanálag.
Það er hægt að skipta hópnum upp, hluti tekur bóklegt í byrjun ágúst og
hinn þegar skólinn er byrjaður.
Verklegt fer svo fram 5 x í sundlaug og 5 x í sjó, það verður svo
samkomulagsatriði hvenær það fer fram.
Kostnaður: Venjulegt verð er 55.000 kr. En við fáum vegna hópafsláttar á
50.000 kr!!!
Skráning: Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig senda e-mail á hana Sögu
Svavarsdóttur: sas8@hi.is
Ætlum að biðja fólk um að skrá sig af alvöru, vegna námskeiðs bókunar.
Taka skal fram hvenær fólk hefur áhuga á að vera í bóklega.
Köfunarklúbbur líffræðinemenda: Er ekki svo bara spurning að halda
stofnfund í haust og skipuleggja ferðir :))))
Endilega skoðið síðuna kafarinn.is til að fá frekari upplýsingar og
commenterið svo á ofangreint hérna á bloggsíðuna.
Sjáumst svo í útilegunni!!!!
Knús og kram
Birna Daníelsdóttir
Saga Svavarsdóttir

Jæja jæja, það virðist ekki skipta fólk máli hvert verður farið, sem er gott þá þarf ekki að pæla mikið í því!! ![]()
En margir vildu fara í þórsmörk og einnig í útileguna á Hólum.. En smá vandamál með Hóla, það er að úrslitaleikurinn í HM er akkurat þessa helgi og margir sem vilja ólmir sjá hann... Veit ekki hvernig aðstaðan er á Hólum hvort hægt sé að horfa á leikinn þar????
En annars þá er ég búin að setja inn nýja könnun
ALLIR að kjósa!!!!! ![]()
Jei jei jei hlakka svo til!!!
